Fóðurverksmiðjan Laxá hf. var stofnuð 28. júní 1991. Heimilisfang félagsins og varnarþing er
á Akureyri. Tilgangur með stofnun félagsins var í fyrstu að taka á leigu vélar og tæki þrotabús Ístess hf. í Krossanesi og
selja viðskiptamönnum þess fóður. Ári síðar keypti Laxá verksmiðju Ístess og aðrar eignir í Krossanesi.Tilgangur félagsins er framleiðsla og sala á fiskeldisfóðri.
Markmið félagsins er að selja hágæða fóður á samkeppnishæfu verði
Ístess hf.
Ístess hf var stofnaði í maí 1985 og voru stofnendur Kaupfélag Eyfirðinga og Síldarverksmiðjan í Krossanesi sem áttu hvort um sig 26%
hlutafjár, og norska fyrirtækið T. Skretting a.s. í Stavanger sem átti 48% hlutafjár. Tilgangur félagsins var framleiðsla og sala fóðurs
fyrir eldisfisk og ýmis þjónusta við fiskeldi.
Við stofnun Ístess hf var undirritaður leyfis- og sölusamningur milli Ístess hf og T. Skretting a.s. sem m.a. veitti ístess hf aðgang að
framleiðslutækni og fóðurgerð T. Skretting a.s. Fóðurverksmiðja var reist árið 1987 og árleg framleiðsla var 8 – 9.000 tonn.
Samkvæmt samningnum fékk Ístess h.f. einnig einkarétt til að selja fóðurvörur undir vörumerki T. Skretting a.s. á Íslandi og í
Færeyjum.
Ístess seldi um 2/3 framleiðslu sinnar til Færeyja. Við stofnun félagsins og fyrstu árin á eftir, ríkti mikil bjartsýni hér
á landi sem og í nágrannalöndum okkar um framtíð laxeldis.
Í maí 1991 var fóðurframleiðslufyrirtækið Ístess hf lýst gjaldþrota eftir að Skretting, norski hluthafinn, hafði sagt upp
sölu- og leyfissamning félaganna.


