03.05.2010
Silfurstjarnan hefur á síðastliðnu ári unnið að því að skipta yfir í laxeldi og fullnýta afkastagetu
eldisstöðvarinnar. Þetta hefur haft í för með sér jákvæða þróun fyrir Laxá þar sem magnið hefur aukist um
25% á fyrstu mánuðum ársins miðað við síðasta ár. Með þessari aukningu verður Silfurstjarnan annar stærsti
innlendi viðskiptavinur Laxár á eftir Íslandsbleikju.


